Dalsgerði 7B, Akureyri Í fjölbýlishúsinu að Dalsgerði 7 (íbúð b) á Verslunarmannafélagið góða 86 fm íbúð sem skiptist í stofu, eldhús, bað og 2 svefnherbergi. Í íbúðinni er, auk búnaðar í stofu, svefnstæði fyrir 4, 3 aukadýnur í geymslu og sængur fyrir 7 manns, barnarúm og barnasæng, eldhúsáhöld og borðbúnaður fyrir 12 manns, örbylgjuofn, gasgrill, sjónvarp, myndbandstæki, þvottavél og sími. Íbúðin er á jarðhæð og gengið úr stofu út á afgirta verönd.Um Akureyri, höfuðstað Norðurlands þarf ekki að fjölyrða, þangað er gott að koma og margt að sjá. Þar er að finna alla þjónustu fyrir ferðamenn og þaðan er hægt að fara í dagsferðir, t.d. að Mývatni, til Ólafsfjarðar, Hríseyjar, Grenivíkur og svo mætti lengi telja.
Verslunarmannafélag SuðurnesjaVatnsnesvegur 14230 KeflavíkSími: 421 2570Fax: 421 5762Netfang: vs@vs.isVefsíða: www.vs.isOpnunartímiMánudaga - fimmtudaga - 10:00 - 16:00Föstudaga - 10:00 - 15:00