VS á glæsilegt orlofshús í Heiðarbyggð við Flúðir. Á þessu einstaka svæði er m.a að finna nýja bústaði Kennarasambands Íslands. Húsið er rúmir 70 fm. Svefnherbergi eru 3 með svefnaðstöðu fyrir 8 og 4 aukadýnur eru í húsinu. Borðbúnaður er fyrir 12 manns, örbylgjuofn, uppþvottavél, sjónvarp, myndbandstæki, gasgrill og fl. Heitur pottur.
Á Flúðum getur fólk gert ýmislegt til dægrastyttingar, farið í gönguferðir í nágrenninu, leikið golf á golfvelli í landi Efra-Sels, skroppið á hestbak að Syðra-Langholti eða farið í sund í sundlauginni á Flúðum en þar er einnig gufubað og ljósalampi. Nýr golfvöllur er í göngufjarlægð. Byggðakjarninn að Flúðum fer ört vaxandi og er ein ástæðan fyrir því mikil fjölgun ferðamanna og orlofshúsa. Helsta atvinnugreinin er ylrækt og þjónusta. Á Flúðum er einnig að finna; pósthús, banka, hótel, bíó, kaffihús / pöbb, verslun, ferðamiðstöð og íþróttahús. Margir merkir staðir eru í næsta nágrenni svo sem Þjórsárdalur, Skálholt, Gullfoss og Geysir.