Sjúkrasjóður Verslunarmannafélags Suðurnesja SJÓÐURINN GREIÐIR: Sjúkradagpeningar Dagpeningar í veikinda- og slysaforföllum í 120 daga (4 mánuði), að loknum greiðslum skv. veikinda- og slysaréttarákvæðum kjarasamninga. Dagpeningar skulu að viðbættum bótum almannatrygginga, greiðslum úr slysatryggingu launafólks eða annarri lögbundinni tryggingu, ekki nema lægri fjárhæð en 80% af meðaltali þeirra heildarlauna sem iðgjald hefur verið greitt af á síðustu 6 mánuðum. Dagpeninga vegna veikinda barna Dagpeninga í 90 daga (3 mánuði), að loknum kjarasamningsbundnum greiðslum launagreiðanda vegna langveikra og alvarlega fatlaðra barna. Greiðslur skulu ekki nema lægri fjárhæð m.v. starfshlutfall sjóðfélaga en 80% af meðaltali þeirra heildarlauna sem iðgjald hefur verið greitt af á síðustu 6 mánuðum. Með langveikum börnum er átt við börn undir 18 ára aldri sem greinast með alvarlegan og/eða langvinnan sjúkdóm og þarfnast sérstakrar umönnunar. Með alvarlega fötluðum börnum er átt við börn undir 18 ára aldri sem greinast með alvarlega greindarskerðingu, geðraskanir eða alvarlega líkamlega hömlun og þarfnast sérstakrar umönnunar. Dánarbætur VS greiðir dánarbætur við dauðsfall fullgildra félagsmanna. Ef hinn látni lætur ekki eftir börn undir 18 árs aldri kr. 250.000. Ef hinn látni hefur látið af störfum vegna aldurs eða örorku greiðast 75% af grunnupphæð dánarbóta. Ef hinn látni lætur eftir sig börn undir 18 ára aldri greiðist kr. 300.000.- til hvers barns eða eftir ákvörðun framkvæmdastjórnar hverju sinni til þess sem hefur barn á framfæri sínu. Gildir ef viðkomandi hefur greitt til félagsins í a.m.k. eitt ár. ÁfengismeðferðHeimilt er að greiða styrk, sem svarar sjúkradagpeningum í allt að 90 daga vegna áfengis- og vímuefnameðferðar. Tæknifrjóvgun/glasafrjóvgunHeimilt er að greiða styrk vegna tæknifrjóvgunar/glasafrjóvgunar og ættleiðingar. Styrkur getur numið 50% af útlögðum kostnaði þó ekki hærra en kr. 50.000.- á ári. Aðrir styrkir Sjúkrasjóður VS greiðir styrk til félagsmanna vegna líf-, slysa- og sjúkdómatrygginga, tannlækninga, sálfræðihjálpar, líkamsræktar, endurhæfingar og kostnað vegna hjálpartækja s.s. gleraugna- og heyrnartækja, krabbameinsleitar og hjartaverndar og vegna dvalar á N.F.L.Í ef ekki koma greiðslur frá Tryggingastofnun ríkisins. Upphæð annara styrkja skal miða við 50% af útlögðum kostnaði samkvæmt reikningi, að hámarki 40% af iðgjöldum viðkomandi í Sjúkrasjóð VS síðustu 36 mánuði. Lágmarksstyrkur á hverju almanaksári skal þó ekki vera lægri en kr. 4.000.
Verslunarmannafélag SuðurnesjaVatnsnesvegur 14230 KeflavíkSími: 421 2570Fax: 421 5762Netfang: vs@vs.isVefsíða: www.vs.isOpnunartímiMánudaga - fimmtudaga - 10:00 - 16:00Föstudaga - 10:00 - 15:00